Félagsmálaráðuneytið vinnur að því að auka tölvulæsi eldra fólks

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Í frétt á vef stjórnarráðsins kemur fram að Ríkiskaup fyrir hönd félagsmálaráðuneytisins hefur óskað eftir tilboðum í kennslu í tölvulæsi fyrir eldra fólk. Um er að ræða sérsniðaða kennslu sem hjálpar eldra fólki um allt land að nýta sér þjónustu og rafræn samskipti á netinu með það að markmiði að draga úr félagslegri einangrun, njóta afþreyingar á netinu og auka notkun á þjónustusíðum.

Námskeiðin skulu vera miðuð af fólki sem er eldra en 60 ára og hefur þörf á námskeiði í tæknilæsi á snjalltæki á borð við spjaldtölvur og snjallsíma.

Í fréttinni er greint frá því að á tímum COVID-19 heimsfaraldursins hafi komið betur í ljós mikilvægi tölvu- og tæknilæsis fyrir alla. Samkomutakmarkanir og sóttvarnaraðgerðir hafi varpað ljósi á hversu mikilvægt það er fyrir eldra fólk að fá öfluga og sérsniða kennslu og þjálfun í tölvu- og tæknilæsi til að geta nýtt sér tæknina.  

Boðið er í verkefnið fyrir hvert landssvæði fyrir sig; Suðurnes, höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Vestfirði, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland og Suðurland en námskeiðin á að halda á sem víðast í hverjum landshluta og tryggja þarf gott aðgengi að staðnum segir í fréttinni.

Fyrir áhugasama eru nánari upplýsingar um útboðið hér

Tengdar greinar