Andrea hæstánægð með lyfjaskammtarann

eftir Ritstjórn

Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að hundraðasti lyfjaskammtarinn hefur verið tekinn í notkun í Reykjavík. Það var hin 97 ára Andrea Kr. Þorleifsdóttir sem fékk lyfjaskammtarann fyrir um það bil tveimur vikum. Hún segist ekki hafa misst af lyfjagjöf síðan og er hæstánægð með skammtarann.  

Andrea sá sjálf umfjöllun um lyfjaskammtara í fjölmiðlum, leist vel á og sóttist sjálf eftir því við heimaþjónustu Reykjavíkur að prófa. Hún sér ekki eftir því. „Mér líkar bara ljómandi vel við lyfjaskammtarann og eins og ég vissi að þá þurfti ég á honum að halda. Hann minnir mig á lyfin en ég gleymdi þeim svo oft um miðjan daginn. Þá er ég ýmist að horfa á sjónvarpið, lesa eða með heimsóknir. Ég er mjög þakklát fyrir þetta tæki, það talar við mig og ég fer bara alveg eftir því sem það,“ segir segir Andrea og hvetur aðra eindregið til að þiggja þjónustuna.   

100 virkir lyfjaskammtarar í notkun   

Velferðarsmiðja Reykjavíkur hóf innleiðingu á lyfjaskömmturum í samstarfi við velferðartæknideild Icepharma í október árið 2023. Þá voru 25 lyfjaskammtarar í notkun en þeir eru nú orðnir 100 sem eru í notkun á reykvískum heimilum. Í heild hafa 150 einstaklingar nýtt skammtarana í lengri eða skemmri tíma.  

Lyfjaskammtarar eru vaktaðir af starfsfólki skjávers Velferðartæknismiðjunnar alla daga ársins en það er starfsfólk í heimaþjónustu sem sér um áfyllingar og viðbrögð við tilkynningum. Ef notandi lyfjaskammtara missir úr lyfjagjöf fær starfsfólk tilkynningu og getur þá brugðist hratt við.  

Lyfjaskammtararnir eru ört vaxandi þjónusta en daglega berast heimaþjónustu Reykjavíkur nýjar umsóknir um þá. Mikill ávinningur þykir af notkun lyfjaskammtara og aukið öryggi fyrir notendur sem gleyma síður lyfjum sínum. Þá er fólk ekki lengur háð því að bíða eftir að starfsmaður heimaþjónustu komi og gefi þeim lyf. Ávinningur er einnig fyrir starfsfólk í heimaþjónustu með aukinni skilvirkni.

Af vefnum www.reykjavik.is

Tengdar greinar