Opnun sérhæfðra dagdvalarrýma fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og ráðning iðjuþjálfa hjá Vestmannaeyjabæ

eftir Ritstjórn

Á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar greinir Thelma Rós Tómasdóttir verkefnastjóri í öldrunarþjónustu frá því að fimm sérhæfð dagdvalarrými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm hafi verið opnuð í dagdvölinni og bætist við þau 10 almennu dagdvalarrými sem fyrir voru.

Dagdvalarrými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm eru sérstök dagdvalarrými sem ætluð eru einstaklingum sem greinst hafa með heilabilunarsjúkdóm. Þjónustan miðar að því að rjúfa einangrun notenda, gefa þeim kost á að umgangast jafningja, taka þátt í daglegum athöfnum og þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður. Sérhæfðu dagdvalarrýmin bjóða upp á allt sem almennu dagdvalarrýmin bjóða upp á, en þar að auki fá einstaklingarnir sem eru í sérhæfðu rýmunum aukalega vitsmunalega, líkamlega og félagslega þjálfun sem stjórnað er af iðjuþjálfa.

Til að uppfylla skilyrði fyrir þessi sérhæfðu dagdvalarrými hefur Vestmannaeyjabær gert samning við Guðrúnu Jóhönnu hjá Heimastyrk sem einnig er samstarfsaðili Aldur er bara tala. Guðrún Jóhanna er iðjuþjálfi með norrænt meistaranám í öldrunarfræðum. Guðrún Jóhanna mun stýra endurhæfingarþjónustunni við notendur sérhæfðu dagdvalarrýmanna.

Thelma segir þetta hafa verið langt ferli og séu þau hjá Vestmannaeyjabæ mjög glöð að þetta sé orðið að veruleika.

Aldur er bara tala óskar Vestmannaeyjabæ til hamingju með þessa framþróun í öldrunarmálum þeirra eldri borgara sem búa í heimahúsum og þurfa á sérhæfðri þjónustu að halda.

Tengdar greinar