Forsetahjónin heimsóttu eldri íbúa í Reykjanesbæ

eftir Ritstjórn

Elíza Reid og Guðni Th.Jóhannesson forseti heimsóttu nokkur dvalar-og hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ á laugardaginn. Á fésbókarsíðu Elízu segir “Íbúar þar búa nú við heitavatnsleysi og þar búa líka Grindvíkingar sem þurftu að yfirgefa heimili sín í nóvember. Ég dáist svo að því hvað eldri kynslóðin mætir þessum hamförum af miklu æðruleysi. Í leiðinni heimsóttum við svo líka við aðgerðastjórnstöð Almannavarna í Reykjanesbæ og þökkuðum fyrir allt það ósérhlífna starf sem nú er unnið við erfiðar aðstæður, þegar allt kapp er lagt á að tryggja fólki á svæðinu aðgengi að vatni svo fljótt sem auðið er”.

Myndir úr heimsókninni má sjá á vef Víkurfrétta www.vf.is

Tengdar greinar