Fæddur 1924 og keppti í spretthlaupi

eftir Ritstjórn

Á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands FRÍ er greint frá að um helgina fór fram Norðurlandameistaramót í eldri aldursflokkum í Laugardalshöll og voru um 250 keppendur skráðir til leiks. Mótið var bæði Norðurlandameistaramót, þar sem keppendur frá Finnlandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Íslandi keppa um Norðurlandatitil í sínum aldursflokki. Mótið var einnig opið mót fyrir aðrar þjóðir utan Norðurlandanna. 

Á mótinu var keppt í tólf mismunandi keppnisgreinum í aldursflokkum frá 35 ára til 99 ára og var þetta í fyrsta sinn sem keppt var í lóðkasti í laugardalshöllinni.

Elsti keppandi mótsins var Finninn Pekka Penttilä og verður hann 99 ára í næsta mánuði. Pekka keppti í 60 metra hlaupi og kom í mark á tímanum 19,32 sek

Tengdar greinar