
Aldur er bara tala er í eigu Sólrúnar Erlu Gunnarsdóttur félagsráðgjafa. Sólrún útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands 2004 og með diplomu í öldrunarþjónustu frá HÍ 2024. Hún lagði áherslu á lausnamiðaða nálgun (solution focused therapy) í starfsnáminu eftir útskrift og aðhyllist þá hugmyndafræði í sínum störfum. Heildarsýn er hin hugmyndafræðilega nálgun og faglegi kjarni í vinnuaðferðum félagsráðgjafa. Sólrún á að baki langa starfsreynslu úr öldrunarmálum sem stjórnandi og ráðgjafi. Hún starfar í dag sem félagsráðgjafi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum og hjá Lífsgæðasetrinu Veru www.veralif.is ásamt því að sinna verkefnum tengdum Aldur er bara tala.
Netfang Sólrúnar er aldur@aldur.is
Vefsíðan horfir sérstaklega til fólks á besta aldri en eins og nafnið gefur til kynna að þá er Aldur bara tala og markmiðið að allir aldurshópar, aðstandendur þeirra sem eru í þörf fyrir þjónustu og starfsfólk í öldrunarþjónustunni hafi einnig gagn og gaman að. Markmið Aldur er bara tala er að draga úr félagslegri einangrun og hafa jákvæð áhrif á lýðheilsu og líðan með skemmtilegum og fræðandi greinum, fréttum og viðtölum. Hægt er að senda fyrirspurn í gegnum form á vefsíðunni. Ráðgjöfin fer fram í gegnum tölvupóst en áskilinn er réttur til að birta úrdrátt úr ráðgjöf undir nafnleynd á síðunni.
Aldur er bara tala hlaut við stofnun styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, lýðheilsusjóði og frá félagsmálaráðuneytinu.
Aldur er bara tala veitir einnig eftirfarandi þjónustu:
Fjölbreytt námskeið um lífið er árin færast yfir
Ráðgjöf um skipulagningu öldrunarþjónustu til minni sveitarfélaga.
Símaráðgjöf til eldri einstaklinga eða aðstandenda þeirra. Hægt er að óska eftir 30 mínútna símaráðgjöf félagsráðgjafa hjá Aldur er bara tala gegn gjaldi. Þá þarf að panta tímann fyrirfram í gegnum tölvupóst og fylgja þarf nafn, kennitala og búseta. Einnig þarf að fylgja með þegar pantaður er tími á hvaða sviði ráðgjafar er þörf svo tíminn verði sem best nýttur. Dæmi um ráðgjöf gæti verið upplýsingar um úrræði í heimabyggð, réttindamál, stuðningsviðtöl vegna einmanaleika ofl. Aldur er bara tala leggur metnað í að veita upplýsingar sem nýst geta til að efla sjálfsbjargargetu einstaklinga og/eða leiðbeina þeim um viðeigandi úrræði.

