Meltingarónot, hægðatregða og niðurgangur

eftir Thelma Rut Grímsdóttir

Meltingarónot eru nokkuð algeng og einkennast af kviðverkjum, uppþembu, miklum vindgangi og/eða breyttum hægðum. Meltingarónot geta haft áhrif á líkamlegt, andlegt og félagslegt ástand og geta þannig haft áhrif á lífsgæði og fjárhagslegt ástand einstaklinga. 

Ef einstaklingar kannast við ofangreind einkenni getur verið gott að huga að nokkrum atriðum:

  • Reglulegu máltíðamynstri 
    • Borða þarf á tveggja til fjögurra klukkustunda fresti
  • Fjölbreyttri næringu
  • Ekki mjög stórar máltíðir í einu
  • Borða skal hægt og tyggja matinn vel 
    • Getum gleypt mikið loft ef borðað er hratt eða ekki tuggið vel
  • Huga að góðum svefni, hreyfingu og andlegri vellíðan
  • Draga úr stressi – Stress og streita getur aukið mikið á meltingarónot
    • Slökun og hugleiðsla getur hjálpað til við að draga úr streitu og hafa þannig áhrif á meltingareinkenni

Hægðir

Hægðir geta verið mismunandi á milli einstaklinga sem og tíðni þeirra. Reglulegt máltíðamynstur getur haft áhrif á meltingareinkenni og hægðir. 

Gott getur verið að skoða Bristol hægðaskalann hér að neðan til þess að meta hægðir. 

Hægðatregða

Hægðatregða er nokkuð algeng og er talið að um 1 af hverjum 7 þjáist af hægðatregðu. Hægðatregða getur haft áhrif á lífsgæði einstaklinga. Hægðatregða er skilgreind sem hægðalosun sjaldnar en þrisvar í viku, en þá er einnig notast við Bristol hægðaskema til að meta hægðir. 

Ástæður hægðatregðu geta verið mismunandi á milli einstaklinga. En mögulegar ástæður geta verið:

  • Hreyfingarleysi
  • Óreglulegt máltíðamynstur
  • Breyting á rútínu
  • Streita, kvíði og/eða þunglyndi
  • Ekki nóg af trefjum í fæðunni
  • Of lítil vökvaneysla
  • Lyf
  • Bætiefni
  • Að hunsa þörfina að fara á klósettið 
  • Lítið næði á salerni

Ráð við hægðatregðu:

  • Auka trefjar í fæðunni 
  • Regluleg hreyfing
  • Borða reglulega yfir daginn
  • Drekka vel af vatni
  • Gefa sér góðan tíma á klósettinu 
    • Nota koll undir fætur
  • Huga að sálarlífinu og góðum svefni
  • Taka Husk
  • Fara á klósettið þegar þörfin kemur

Stundum þarf að nota Magnesium medic til að hjálpa til við að losa hægðir eða önnur hægðalyf, en gott er að gera það í samráði við heimilislækni, sérstaklega ef þörf er á til langs tíma. 

Hækkun undir fótum á meðan hægðalosun á sér stað hjálpar til við að koma frá sér hægðum á eðlilegri hátt og að klára hægðalosun. 

Niðurgangur

Niðurgangur er skilgreindur sem lausar eða vatnsríkar hægðir a.m.k. þrisvar sinnum á sólarhring. Ef um langvarandi niðurgang (meira en viku) er að ræða er mikilvægt að leita til læknis. Mikilvægt er að meðhöndla langvarandi niðurgang til þess að koma í veg fyrir mögulegan næringarskort, þurrk og orkuleysi. Ef grunur leikur á að ákveðinn matur þolist illa getur verið gott að hafa samband við næringarfræðing. 

Ástæður fyrir niðurgangi geta verið margskonar, t.d.: 

  • Streita, stress, þunglyndi
  • Ferðalög
  • Sýklalyf
  • Bakteríu- eða veirusýking
  • Bólgusjúkdómar í meltingarvegi
  • Iðraólga
  • Lyf
  • Matur sem þolist illa

Hvað er til ráða:

  • Bæta vökvatap – ekki bara vatn, nota gatorade eða steinefna freyðitöflur til að bæta upp steinefnatap
  • Borða reglulega yfir daginn 
  • Takmarka mat og drykki sem geta örvað ristilinn ef niðurgangur er mikill:
    • Sterkur matur, fituríkur matur, kaffi og áfengi
    • Borða mat sem þolist oft vel og bæta fjölbreytni smám saman:
    • Fiskur, súpur, brauð, egg, soðið grænmeti
  • Prófa Husk
  • Forðast skal nikótín og tyggjó – það getur örvað ristilinn
  • Grindarbotnsæfingar eru mikilvægar

Tengdar greinar