Beinþynning ; ástæður, einkenni og fyrirbyggjandi þættir

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Á vef Heilsuveru er að finna gagnlegar upplýsingar um beinþynningu, orsakir, einkenni og ekki hvað síst hvað hægt sé að gera til að minnka líkurnar á beinþynningu

Beinþynning (e. osteoporosis) er sjúkdómur sem einkennist af minnkuðum beinmassa og rýrnun beina sem veldur því að bein brotna auðveldlega. Úlnliðsbrot og samfallsbrot á hrygg eru algengustu brotin ásamt mjaðmabroti. Beinbrot valda takmörkun á hreyfingu og virkni sem veldur oft minni sjálfsbjargargetu og skerðingu á lífsgæðum. Hætta á beinþynningu eykst með aldrinum og eru konur í þrefalt meiri hættu á að fá beinþynningu en karlar.

Helstu ástæður beinþynningar

Eftirfarandi þættir geta aukið líkur á beinþynningu:

  • Erfðir – Um 70% beinþéttninnar stýrist af erfðum
  • Aldur – Beinþéttni minnkar með aldrinum
  • Tíðarhvörf – Kvenhormónið estrógen er beinverndandi en við tíðarhvörf minnkar styrkur þess í líkamanum
  • Skortur á kalsíum og D-vítamíni
  • Óhófleg áfengisneysla
  • Reykingar.
  • Hreyfingarleysi
  • Að vera undir kjörþyngd
  • Lyf – sykursterar (prednisolon), skjaldkirtilslyf og flogaveikilyf

Einnig eru þeir einstaklingar sem áður hafa brotið bein í meiri áhættu á að fá beinþynningu en aðrir.

Einkenni

Beinþynning getur verið einkennalaus og er oft talað um hana sem þöglan sjúkdóm. Hún greinist oft ekki fyrr en fólk hefur brotið bein við lítinn áverka, t.d. við fall á jafnsléttu. Önnur einkenni geta verið bakverkir, kryppa, hæðarlækkun eða aðrar líkamlegar hömlur.

Greining

Beinþynningu er hægt að greina með sértækri röntgenrannsókn þar sem þéttni beinsins er mæld.

Hvað get ég gert?

Eftirfarandi þættir geta minnkað líkur á að fá beinþynningu:

  • Borða næringarríkan mat. Taka inn lýsi eða D-vítamíntöflur ásamt kalki.
  • Regluleg hreyfing. Ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 30 mínútur á dag. Göngur og styrktaræfingar er gott að stunda.
  • Stólaleikfimi getur hentað mörgum.
  • Hætta reykingum. Reykingar hafa neikvæð áhrif á beinin.
  • Takmarka áfengisneyslu. Alkóhól veikir beinin með því að draga kalk og önnur steinefni úr þeim. 
  • Minnka neyslu drykkja sem innihalda mikið magn af koffíni eða sykri.
  • Byltuvarnir. Forðast lausar snúrur og mottur á heimili og hafa góða lýsingu innan dyra.
  • Góður skóbúnaður skiptir máli, sérstaklega í hálku.

Grein af ; www.heilsuvera.is

Tengdar greinar