SSS kalla eftir stórauknu átaki í þjónustu við aldraða í heimahúsum og stefnumótun varðandi hjúkrunar-og dagdvalarrými

eftir Ritstjórn

Á aðalfundi sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem haldinn var 17. september síðastliðinn var þess krafist í ályktun að ríkisvaldið bæti heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Segir þar að samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar hafi íbúum á Suðurnesjum fjölgað um 23% á árunum 2016-2022 en landsmeðaltalið er 12%. Fjárveitingar til heilbrigðismála á Suðurnesjum hafi ekki endurspeglað þá þróun.

Í tölum hins opinbera kemur fram að heilbrigðisútgjöld vegna þeirra sem eru 65 ára og eldri eru um helmingur af öllum heilbrigðisútgjöldum hins opinbera. Fólk í þessum aldurshópi eru rúmlega 14% mannfjöldans. Í ljósi þess að fjöldi eldri borgara mun tvöfaldast á næstu 25 árum er ekki einungis þörf á auknum fjármunum í heilbrigðiskerfið heldur á stórauknu átaki í þjónustu við aldraða í heimahúsum.

Jafnframt er kallað eftir stefnumótun til framtíðar í hjúkrunar- og dagdvalarrýmum á Suðurnesjum og landinu öllu og að slík stefna feli í sér reglur um fjölda rýma miðað við íbúafjölda.

Langvarandi mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu er staðreynd, sem bregðast verður við af krafti. Meðal annars væri hægt að horfa til heilbrigðismenntunar á Suðurnesjum líkt og var áður. Það er í samræmi við helstu áherslur atvinnu og nýsköpunar í Sóknaráætlun Suðurnesja. Í fimm ára fjármálaáætlun kemur fram að árleg fjáraukning til heilbrigðismála til ársins 2026 verður einungis á bilinu 1,3% – 1,7% og á síðasta ári fjármálaáætlunarinnar lækka útgjöld til heilbrigðismála um 2% stig á milli ára. Það er því ljóst að framlög til hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu munu lækka á næstu árum þrátt fyrir fjölgun eldri borgara

Sveitarstjórnarfólk á Suðurnesjum bendir á að í Heilbrigðisstefnu ríkisins til ársins 2030, kemur fram að Heilsugæslunni er ætlað stórt hlutverk í heilbrigðisþjónustu við landsmenn samkvæmt lögum. Hún á að vera fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu þar sem notendur eiga kost á almennum lækningum, hjúkrun, endurhæfingu, heilsuvernd og forvörnum. Viðmið heilsugæslu í þjónustu er 8.000-10.000 íbúar á heilsugæslu. Á Suðurnesjum ættu að vera þrjár heilsugæslur miðað við íbúafjölda. Samkvæmt fjármálaáætlun 2023 er dregið úr fjármögnun nýrrar heilsugæslu um 100 milljónir.

Byggja þurfi upp þjónustu Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja í öllum þéttbýliskjörnum á Suðurnesjum svo hún geti tekist á við verkefnin sem henni er ætlað að sinna samkvæmt heilbrigðisstefnu ríkisins.

Af www.sss.is

Tengdar greinar