Hvernig þekkjum við netsvik og svikasímtöl? - Aldur er bara tala

Hvernig þekkjum við netsvik og svikasímtöl?

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Netsvik og svikasímtöl verða sífellt meira sannfærandi og það getur verið erfitt að átta sig á hvað er raunverulegt og hvað ekki.

Þú færð kannski SMS um pakka sem bíður eftir þér, tölvupóst sem virðist koma frá bankanum eða símtal frá einhverjum sem segist þurfa aðstoð þína. Stundum virðist meira að segja símanúmerið vera rétt.

Í auknum mæli er einnig verið að reyna að komast inn á netbanka með því að senda á símanúmer einstaklinga beiðni um samþykki með pinnúmeri á rafrænum skilríkjum.

Þess vegna er gott að hafa nokkur einföld atriði í huga.

Varastu tímaþrýsting

Svindlarar vilja gjarnan að við bregðumst hratt við. „Þú þarft að gera þetta strax“, „reikningnum þínum verður lokað“ eða „greiðslan þarf að berast núna“.

Ef einhver setur á þig mikla pressu er ágætt að stöðva við og athuga málið betur.

Ekki gefa upp lykilorð eða öryggisupplýsingar

Vertu alltaf á varðbergi ef óskað er eftir lykilorðum, kortaupplýsingum eða auðkenningarkóðum í síma, SMS-i eða tölvupósti.

Ekki samþykkja að setja inn pin- númer á rafrænum skilríkjum í flýtir nema þú hafir sjálf/ur verið að fara inn á eitthvað.

Ef einhver segist vera að hringja frá bankanum og þú ert ekki viss skaltu einfaldlega slíta símtalinu og hringja sjálf/ur í bankann í símanúmer sem þú veist að er rétt.

Hugsaðu þig um áður en þú smellir

SMS um ógreitt sendingargjald, endurgreiðslu eða pakka sem bíður afhendingar getur litið mjög sannfærandi út.

Í stað þess að smella á tengilinn í skilaboðunum er öruggara að fara sjálf/ur inn á heimasíðu eða app fyrirtækisins og athuga málið þar.

„Hæ amma, þetta er nýja númerið mitt“

Ein tegund svika gengur út á að þykjast vera barn, barnabarn eða annar nákominn einstaklingur. Oft fylgir saga um bilaðan síma, vandræði eða brýna þörf fyrir peninga.

Ef þú færð svona skilaboð skaltu hringja í viðkomandi á númerið sem þú ert með fyrir eða hafa samband við annan í fjölskyldunni áður en þú gerir nokkuð.

Með nýrri tækni er jafnvel hægt að líkja eftir rödd fólks. Það að röddin hljómi kunnuglega er því ekki lengur fullkomin trygging fyrir því að rétt manneskja sé á hinum enda línunnar.

Ein einföld regla

Ef eitthvað vekur grun hjá þér: Ekki flýta þér.

Ekki smella strax, ekki gefa upp upplýsingar og ekki millifæra peninga. Taktu þér nokkrar mínútur og athugaðu málið með öðrum hætti.

Og ef þú skyldir láta blekkjast er engin ástæða til að skammast sín. Svikin eru orðin mjög vel gerð og geta blekkt hvern sem er. Ef bankaupplýsingar eða kortaupplýsingar hafa verið gefnar upp er mikilvægt að hafa strax samband við bankann.

Kannski er besta ráðið einfaldlega þetta:

Ef eitthvað virðist skrýtið, staldraðu við og athugaðu málið. Það liggur sjaldnast svo mikið á að ekki megi bíða í fimm mínútur.

Tengdar greinar