Hvenær verður maður eiginlega aldraður? - Aldur er bara tala

Hvenær verður maður eiginlega aldraður?

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Í dag, 1. október, er Alþjóðadagur aldraðra. Þema Sameinuðu þjóðanna á Alþjóðadegi aldraðra í ár snýr að öld langlífis og því hvernig samfélagið þarf að þróast með. Lengra líf kallar ekki eingöngu á meiri heilbrigðis- og félagsþjónustu. Það kallar líka á nýja hugsun um atvinnuþátttöku, nám, húsnæði, samfélagsþátttöku og tækifæri fólks til að halda áfram að leggja sitt af mörkum

En hverjir eru eiginlega „aldraðir“?

Er það fólk sem hefur náð 67 ára aldri? 70 ára? Eða snýst það kannski alls ekki bara um töluna í kennitölunni?

Í dag lifir fólk lengur, er lengur á vinnumarkaði og margir halda áfram að ferðast, læra, hreyfa sig, skapa og takast á við ný verkefni langt fram eftir aldri. Sextug manneskja getur verið á allt öðrum stað í lífinu en önnur manneskja á sama aldri og það sama á við um sjötuga, áttræða og níræða.

Orðið aldraður getur því verið dálítið sérstakt. Það setur stóran og afar fjölbreyttan hóp fólks undir einn hatt, eingöngu út frá aldri. En aldur segir okkur í raun ótrúlega lítið um áhuga, getu, heilsu, drauma eða lífsgleði einstaklingsins.

Kannski ætti Alþjóðadagur aldraðra því ekki síður að vera dagur til að minna okkur á að sjá manneskjuna á undan aldrinum. Að eldast er ekki sérstakt ástand sem byrjar við ákveðinn afmælisdag. Við erum öll að eldast á hverjum einasta degi.

Líklegast er það kjarni málsins að aldur segir hversu lengi við höfum lifað en ekkert um það hver við erum. Aldur er bara tala !

Tengdar greinar