0
Eldra fólki er hættara við ýmsum óhöppum. Slys hjá eldra fólki hafa oft alvarlegri afleiðingar en hjá þeim yngri. Gott er að huga að þessum þáttum áður en óhöppin verða
Nokkur ráð til að auka öryggi:
- Færa hluti sem eru notaðir daglega s.s. bolla, diska og skálar, á stað þar sem auðvelt er að ná í þá.
- Með því að fjarlægja mottur af gólfum eða skrautmuni sem þar standa er hægt að minnka hættuna á byltum.
- Fá lægri sturtubotn til að minnka hættu á byltum.
- Fá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða öldrunarráðgjafa til að koma og meta aðstæður á heimili.
- Fjárfesta í öryggishnappi og fallskynjurum. Mikið úrval af slíku er til hjá öryggisfyrirtækjum. Heilbrigðisstarfsfólk getur sótt um niðurgreiðslu hjá SÍ.
Hér er hægt að skoða bækling um fleiri atriði sem gott er að hafa í huga
https://issuu.com/landsbjorg/docs/sl_0418-9_o_rugg_efri_a_r_vefur
