Við erum þrjú systkini en mér finnst öll ábyrgðin á öldruðum foreldrum okkar lenda á mér. Hvernig get ég breytt því án þess að skapa rifrildi ?
Kveðja lesandi
Kæri lesandi, takk fyrir að leita ráðgjafar á Aldur er bara tala.
Það sem þú lýsir er algeng staða í fjölskyldum. Oft gerist það smám saman og án þess að nokkur ákveði það að eitt systkini tekur að sér stærstan hluta ábyrgðarinnar.
Gott fyrsta skref er að ræða málið áður en þreyta og gremja safnast upp. Talaðu út frá þinni upplifun: „Mér finnst ábyrgðin vera orðin of mikil hjá mér og mig langar að við skoðum hvernig við getum skipt henni betur” .
Gott ráð er svo að skrifa niður hvað þarf að gera í samvinnu við foreldra ykkar að sjálfsögðu og skipta verkefnunum á milli ykkar. Þetta má til dæmis setja upp í deiliskjal. Jöfn ábyrgð þarf ekki að þýða að allir geri nákvæmlega jafn mikið, heldur að einn þurfi ekki að gera allt.
Og mundu: Að vera góður aðstandandi þýðir ekki að þurfa alltaf að vera til taks. Það er bæði eðlilegt og mikilvægt að setja mörk.
Kveðja
Sólrún Gunnarsdóttir félagsráðgjafi
Aldur er bara tala
