Björn Bjarki Þorsteinsson rifjar upp þegar öllu var skellt í lás á hjúkrunarheimilum landsins fyrir tveimur árum

eftir Ritstjórn

Björn Bjarki Þorsteinsson formaður stjórnar samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdarstjóri Bjarkahlíðar sendi frá sér grein í dag þar sem hann rifjar upp að nú séu tvö ár frá því að við starfsmenn hjúkrunarheimila og annarra stofnana í heilbrigðiskerfinu tókust á við fyrstu aðgerðir til varnar heimilisfólki hjúkrunarheimila landsins og öðrum sem þiggja þjónustu velferðarkerfisins gagnvart Covid-19. „Allt frá fyrstu stundu þessa fordæmalausa verkefnis okkar frábæra starfsfólks hafa starfsmannahópar heimila og stofnana allt í kringum landið staðið saman öll sem eitt. Í upphafi faraldursins höfðum við ekki undan að læra ný hugtök og skilgreiningar en sum þeirra hafa fest betur í huga okkar en önnur. Fordæmalausir tímar er eitt þeirra“ segir Bjarki í grein sinni.

Bjarki bendir á að í upphafi marsmánaðar 2020 tóku hjúkrunarheimili landsins stóra ákvörðun með sameiginlegum hætti; skellt var í lás og allar heimsóknir bannaðar til heimilisfólks tímabundið. Aldrei hefði honum dottið það í hug að til þess háttar aðgerða yrði nokkurn tíma gripið en aftur, aðstæður voru fordæmalausar og því var gripið til fordæmalausra ráðstafana. Sama var upp á teningnum víðar í starfsemi þeirri sem aðildarfélög innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu standa fyrir.

Nýjar áskoranir biðu meðal annars í dagdvölum, dagþjálfunum og endurhæfingastarfsemi, sums staðar þurfti að loka, annars staðar að hliðra verulega til og allt var þetta gert af fullkomnu æðruleysi í þágu þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda og þeim til varnar. Starfsfólk sýndi einstaka fórnfýsi á allan hátt, skermaði sig af í mörgum tilvikum í sínum frítíma og aftur, allt í þágu fólksins sem treystir á þjónustu þeirra á degi hverjum.

Bjarki þakkar í grein sinni heilbrigðisstarfsfólkinu okkar og vill sérstaklega draga fram þátt starfsmanna fyrirtækja og stofnana innan raða Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Þá þakkar hann líka sóttvarnaryfirvöldum og forráðafólki í heilbrigðiskerfinu fyrir það hve vel það stóð sig í sínum verkefnum.

„Við forystufólk SFV höfum farið þess á leit við stjórnvöld að okkar fólk, sem hefur staðið vaktina með glæsibrag undanfarin tvö ár, verði umbunað fyrir fórnfýsi sína og afburða frammistöðu í fordæmalausum aðstæðum. Við trúum því og treystum að starfsfólki stofnana okkar og fyrirtækja verði umbunað líkt og hefur verið gert við a.m.k. hluta annarra heilbrigðisstarfsmanna. Aðildarfélög Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu eru mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfinu og það er mikilvægt að okkar dýrmæta starfsfólk upplifi sig með þeim hætti, jafnt dags daglega sem og í fordæmalausum aðstæðum“ segir í greininni sem lesa má í heild undir skoðunum á www.visir.is

Tengdar greinar