Tæpir 1,4 milljarðar króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu - Aldur er bara tala

Tæpir 1,4 milljarðar króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

eftir Ritstjórn

Á vefsíðu stjórnarráðsins segir að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra hafi úthlutað tæpum 1,4 milljörðum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna ársins 2026.

Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Alls voru veittir 55 styrkir til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á öldrunarstofnunum vegna ársins 2026. Til samanburðar voru 44 styrkir veittir á árinu 2025.

Ef litið er á veitta styrki nær þrefaldaðist hlutfall landsbyggðarinnar milli ára (fór úr 8% í 21%)

Hæsti styrkurinn 316.739.948 kr fór til Vigdísarholts til breytinga á fjölbýli í einbýli. Hæsti styrkurinn á landsbyggðina fór til Hjúkrunarheimilisins Fellsenda fyrir fjölgun á rýmum 92.757.538 kr.

Fréttina alla og lista yfir úthlutanir úr sjóðnum má sjá hér www.stjórnarradid.is

Mynd: Stjórnarráðið

    Tengdar greinar