Sofðu vel, það auðveldar lífið ! - Aldur er bara tala

Sofðu vel, það auðveldar lífið !

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Alþjóðlegi svefndagurinn var haldinn s.l föstudag. Þemað í ár var „Sofðu vel, það auðveldar lífið“ og er fólk hvatt til að forgangsraða svefni fyrir heilsuna. Svefn hefur m.a jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, námsgetu og einbeitingu og hjálpar heilanum að festa upplýsingar í minni.

Embætti landslæknis hefur gefið út viðmið um æskilegan svefntíma fyrir hvert aldursskeið. Viðmiðin eru fyrir heilbrigða einstaklinga jafnt og þá sem glíma við svefnraskanir.

Til dæmis eru viðmiðin um æskilegan svefntíma fyrir 26-64 ára 7-9 tímar á nóttu og 65 ára og eldri 7-8 tímar á nóttu.

Svefnvenjur og svefnumhverfi

Mikilvægt er að huga að svefnrútínu og hafa ákveðna þætti í huga;

Hafa reglu á svefni, draga úr skjánotkun tveimur klukkutímum fyrir svefn, slaka á, róa hugann og deyfa lýsingu fyrir svefn. Hafa hæfilega svalt í svefnherberginu og jafnvel opna glugga, hafa dimmt og hljóðlátt í herberginu.

Aðrir þættir sem stuðla að góðum svefni eru að forðast koffínneyslu eða minnsta kosti 6 tímum fyrir háttatíma og ágæt venja að drekka ekki koffíndrykki eftir klukkan 14 á daginn.

Regluleg hreyfing bætir svefninn en þó ætti að gæta að því að hreyfa sig ekki af mikillri ákefð rétt fyrir svefninn.

Áfengisdrykkja og notkun nikótíns hefur truflandi áhrif á svefninn. Einnig ætti að forðast að leggja sig á daginn og þá sérstaklega eftir klukkan 14.

Heimildir; https://island.is/frett/althjodlegur-svefndagur-13-mars-2026

Tengdar greinar