Sumarið er tíminn

eftir Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir

Sumarið er tíminn þar sem við ættum að leggja mikla áherslu á heilsuna okkar. Að njóta útivistar og samveru í góðum félagsskap á meðan við öndum að okkur ferskum sumarblæ. Það er örugglega ekki af ástæðulausu að beljurnar skoppa af gleði um túnin þegar þær komast út á vorin.

Heilsan þarf hleðslu

Þetta á við um okkur öll en þó sérstaklega þá sem fara lítið út yfir vetrartímann vegna kulda og veðurfars eða vegna skertrar færni út frá veikindum og fötlun. Oft er þörf á stuðningi og mikilli hvatningu til að koma sér af stað þar sem líkaminn rýrnar ansi hratt ef hann reynir lítið á sig. Sama má segja um andlega heilsu og félagslega heilsu. Ef við hlúum ekki vel að ölum þessum þáttum þá gefur það auga leið að ekkert vex nema það sem við vökvum eins og blómin og hvað gerist þegar það gleymist endurtekið að vökva þau ?

Hvati til iðju er mikilvægt hjálpartæki

Mynd: Kringlan

Amma mín var ekki mikið fyrir að fara í göngutúra á sínum efri árum og sinnti almennt ekki mikilli hreyfingu með ákefð fyrir utan kraftmikla sjálfboðavinnu hjá Rauða krossinum í fjöldamörg ár. Mér tókst að fá hana í einstaka göngutúr gegnum árin en svo varð ég fyrir mikilli hugljómun í námi mínu í iðjuþjálfunarfræðum í Kaupmannahöfn þegar ég áttaði mig á hver hennar hvati var til að ganga. Það var að fara í verslunarmiðstöðvar því hún elskaði að skoða föt og skó og vá hvað hún gat gengið í þeim heimsóknum sem hún kom til mín í Danmörku sem voru ófáar. Hún gekk eins og herforingi milli verslana á milli þess sem vð settumst niður og fengum okkur kaffi og gott meðlæti og þá náðu fæturnir að hvílast og hún að safna upp orku.

Gæðin umfram magnið

Mögulega er einhver í kringum þig sem þú veist að hefði gott af því að fara út úr húsi, hreyfa sig og gera eitthvað skemmtilegt eins og að fara á kaffihús, göngutúr, dorga, pútta á æfingasvæði golfvallar, fá sér ís í brauði, kíkja í sund eða styttri ferðalög. Ég hvet þig til að hafa samband við þann aðila til að bjóða upp á skemmtilega samverustund utan heimilis. Hér skiptir magnið ekki máli heldur gæðin, miklu betra að hafa iðjuna stutta og hnitmiðaða. Fólk er miklu líklegra til að sinna iðju utandyra ef þau finna að þau ráða við það líkamlega og orkulega séð og miklu frekar að endurtaka boðin því viljum fá þau sem oftast út úr hús.

Ávinningur af heilsuúri

Mynd: aldurerbaratala

Við gerum okkur nefnilega oft ekki grein fyrir hvað því fylgir mikil kyrrseta og einhæf iðja að vera mikið innan dyra heima hjá okkur. Það er ekki mikið um hreyfingu sem reynir mikið á okkur nema kannski ef við erum í allsherjar hreingerningu eða ef við erum í einhverjum breytingum á húsgögnum eða rúmum sem gerist væntanlega ekki oft á ári. Það geti því verið hugmynd að gefa ömmu og afa heilsuúr sem ekki þarf að hlaða heldur eru með batteri sem duga í ca ár. Það kæmi örugglega mörgum á óvart hvað fólk sem fer lítið úr úr húsi og sinnir einhæfri iðju hreyfir sig lítið og margir hverjir með skert svefngæði. Svona einföld heilsuúr fást víða sem auðvelt er að tengja við snjallsíma til að fá mikilvæga yfirsýn um heilsufar, hreyfingu og daglega iðju.

Vert er að taka fram að hér er ekki átt við eldri borgara, ömmur og afa sem eru aldrei heima hjá sér enda er aldur bara tala. Heldur er átt við þau sem eru mikið heima hjá sér, fara lítið að heiman, eru mögulega með hjálpartæki til að komast leiða sinna eða eru búsett í þjónustuíbúð fyrir aldraða eða á öldrunarheimili og þar af leiðandi komin með ákveðna færniskerðingu. Það sýndi sig í rannsókn minni í norrænu meistaranámi í öldrunarfræðum að það var karlmönnum búsettum á öldrunarheimilum mjög mikilvægt að komast í sjúkra-og iðjuþjálfun til að bæta heilsu sína og færni en þeim þótti ekki síður mikilvægt að fá tækifæri til að komast út úr húsi og finna að þeir væru enn mikilvægur hluti af samfélaginu okkar góða.

Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir. (2014). Þegar heilsan brestur þá breytist margt. Upplifun aldraðra karlmanna af búsetu á öldrunarheimilum á höfuðborgarsvæðínu (Meistararitgerð, Háskóli Íslands. ) Skemman. http://hdl.handle.net/1946/17822

Tengdar greinar