Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ - Aldur er bara tala

Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ

eftir Ritstjórn

Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028

Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma. Nú þegar hafa fjölmargir áfangar verið teknir í þá átt og vonandi eru fleiri framundan

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/06/23/Nytt-hjukrunarheimili-med-90-rymum-verdur-opnad-vid-Keilisbraut-i-Reykjanesbae/

Tengdar greinar