Félagsstarf og samvera að glæðast eftir faraldurinn

eftir Ritstjórn

Á heimasíðu Trölla fréttavefs í Fjallabyggð www.trolli.is er sagt frá því að á laugardaginn 26. mars sl. hafi félagsmenn sem eru lífeyrisþegar farið í boði Einingar-Iðju á leikritið „Í fylgd með fullorðnum“ sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Um 100 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýninguna sem var hin besta skemmtun.

Fyrir sýningu var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla.

„Í fylgd með fullorðnum“ er nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson sem Leikfélag Hörgdæla frumsýndi fyrr í mars. Um er að ræða verk sem byggt er á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar um Sumarliða og hans fólk, sem nánast hvert mannsbarn þekkti á árum áður og margir muna enn.

Tengdar greinar