1.355 nýjum hjúkrunarrýmum bætt við á næstu fjórum árum - Aldur er bara tala

1.355 nýjum hjúkrunarrýmum bætt við á næstu fjórum árum

eftir Ritstjórn

Á vef stjórnarráðsins er kynnt ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu sem gerir ráð fyrir mikilli fjölgun hjúkrunarrýma og viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Uppbygging hjúkrunarheimila heyrir undir Ingu Sæland sem kynnti áætlunina í dag.

  • 1.507 hjúkrunarrými verða tekin í notkun fyrir lok árs 2030.
  • Af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins.
  • 90% af þeim hjúkrunarrýmum sem tekin verða í gagnið verða þannig hrein viðbót við hjúkrunarrýmin sem þegar eru til staðar út um landið.
  • 10% eru endurbætur á eldri rýmum – samtals 152 hjúkrunarrými
    Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu en samkvæmt framkvæmdaáætluninni verða þau orðin 4.417 árið 2030

    Nýju rýmin skiptast þannig að á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 897 nýjum rýmum, 146 nýjum rýmum á Norðurlandi, 140 á Suðurnesjum, 72 á Suðurlandi, 60 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum og 10 á Austurland

Nánari upplýsingar á https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/03/16/Riflega-1.500-hjukrunarrymi-tekin-i-gagnid-fyrir-lok-ars-2030-/

Tengdar greinar