„Betra er að vera elstur í líkamsræktinni heldur en yngstur á hjúkrunarheimilinu“ - Aldur er bara tala

„Betra er að vera elstur í líkamsræktinni heldur en yngstur á hjúkrunarheimilinu“

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir
Sigríður Björnsdóttir innkirtlalæknir

Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir í Heilsuklasanum, opnaði nýlega fræðsluvefinn https://www.beinheilsa.is sem ætlað er að auka fræðslu um beinheilsu, beinþynningu og forvarnir gegn beinbrotum. Um er að ræða mikilvægt lýðheilsumál þar sem beinbrot geta haft veruleg áhrif á lífsgæði, sjálfstæði og færni fólks, sérstaklega með hækkandi aldri.

„Sum beinbrot er hægt að fyrirbyggja en önnur ekki,“ segir Sigríður. „Háorkubrot verða við mikinn áverka, til dæmis í bílslysum eða alvarlegum skíðaslysum, þar sem jafnvel heilbrigð bein myndu brotna. Hins vegar eru svokölluð lágorkubrot oft merki um undirliggjandi beinþynningu. Þá getur einstaklingur brotnað við lítinn áverka, eins og við fall í sama plani eða jafnvel við einfaldar daglegar athafnir.“

Beinþynning er þögull sjúkdómur

Beinþynning veldur yfirleitt engum einkennum fyrr en brot kemur upp. Talið er að eftir fimmtugt muni önnur hver kona og fjórði hver karlmaður fá beinþynningarbrot einhvern tíma á lífsleiðinni.

Algengustu beinþynningarbrotin eru framhandleggsbrot, samfallsbrot í hrygg og mjaðmarbrot. Slík brot geta valdið miklum verkjum, skertri hreyfigetu og minnkuðum lífsgæðum og sumir ná aldrei fullri færni aftur.

Hverjir eru í áhættu?

Beinþéttni ræðst að stórum hluta af erfðum, en einnig skipta lífsstíll og heilsufar miklu máli. Langvarandi notkun sykurstera, vannæring, lág líkamsþyngd og ýmsir langvinnir sjúkdómar geta aukið áhættu á beinþynningu.

Greining fer fram með beinþéttnimælingu sem er einföld röntgenrannsókn á hrygg og mjöðmum. Rannsóknin tekur um 20–30 mínútur og geislunin er lítil. Flest tæki taka einnig hliðarmynd af hrygg til að kanna hvort samfallsbrot séu til staðar.

Hvað er hægt að gera?

Já, mjög margt sem maður getur gert sjálfur til að styrkja beinin, auka þéttnina og fyrirbyggja brot. Betra er heilt en gróið. Það sem skiptir mestu máli er að nota beinin: styrktaræfingar og högg á beinin eins og ganga rösklega, hoppa, sippa, allt þetta getur aukið beinþéttnina. Sterkari vöðvar styðja beinin, og jafnvægisæfingar draga úr líkum á byltum.

Regluleg hreyfing hefur veruleg áhrif á heilsu og lífsgæði. Talið er að 20–30 mínútna hreyfing, 2–3 sinnum í viku, geti bætt allt að 2–3 árum við lífslíkur 70 ára einstaklinga. Mikilvægt er að finna þá hreyfingu sem hentar hverjum og einum best, hvort sem það eru æfingar heima, líkamsrækt í stöð eða hóptímar. Það sem skiptir mestu máli er að hreyfing verði reglulegur hluti af daglegum lífsstíl. Bestur árangur næst þegar hreyfingin er fjölbreytt og felur í sér blöndu af styrktaræfingum, jafnvægisæfingum og þolþjálfun, þar sem slíkt stuðlar að betri heilsu, auknum styrk og meiri lífsgæðum.

Maður getur t.d.auðveldlega þjálfað upp jafnvægið með því að standa á öðrum fæti þegar maður burstar tennurnar eða þegar maður er að klæða sig í og úr sokkunum. Holl og góð næring er einnig mjög mikilvæg, nægilegt kalk úr fæðu og inntaka á D-vítamíni, sérstaklega hér á Íslandi.

Mikilvægt að fyrirbyggja byltur

Byltur eru ein algengasta orsök beinbrota hjá eldri einstaklingum og því mikilvægt að huga vel að umhverfinu bæði heima og utandyra.

Góð lýsing, hreinar gönguleiðir, fjarlæging lausra motta og snúra ásamt stöðugum skóm með góðu gripi geta minnkað líkur á falli. Á veturna er mikilvægt að nota brodda eða aðrar hálkuvarnir.

Beinheilsa.is varð til úr þörf fyrir fræðslu

Sigríður segir hugmyndina að vefnum hafa kviknað eftir að hún áttaði sig á því hversu erfitt getur verið fyrir fólk að muna allar upplýsingar sem fara á yfir í stuttu læknaviðtali.

„Ég fann fyrir þörf fyrir eina góða og aðgengilega íslenska fræðslusíðu um beinheilsu og forvarnir,“ segir hún.

Að verkefninu komu einnig Thelma Rut Grímsdóttir næringarfræðingur, Lars Óli Jessen og Elín Sigurðardóttir íþróttafræðingar, auk Björns Andra Pálssonar og Elsu Hauksdóttur sem sáu um forritun og hönnun síðunnar. Öll vinnan var unnin í sjálfboðavinnu og af miklum áhuga á fræðslu og forvörnum.

Á síðunni má finna:

  • Almennar upplýsingar um beinþynningu og beinbrot
  • Fræðslu um næringu og kalkinntöku
  • Kalkreiknivél
  • Myndbönd með styrktar- og jafnvægisæfingum
  • Upplýsingar um beinverndandi lyf og meðferð

Námskeiðið Sterkari bein

Í Heilsuklasanum hefur einnig verið sett á laggirnar námskeiðið Sterkari bein, sem er sérsniðið fyrir einstaklinga með beinþynningu eða minnkaðan beinmassa. Þar er lögð áhersla á reglulega líkamsrækt undir leiðsögn íþróttafræðings ásamt fræðslu frá næringarfræðingi og innkirtlalækni.

Markmiðið er að styrkja fólk til að taka virkan þátt í eigin heilsu og draga úr líkum á beinbrotum síðar á ævinni.

Að lokum segir Sigríður:
„Betra er að vera elstur í líkamsræktinni heldur en yngstur á hjúkrunarheimilinu.“

Tengdar greinar