Mataræði samhliða þyngdarstjórnunarlyfjum - Aldur er bara tala

Mataræði samhliða þyngdarstjórnunarlyfjum

eftir Thelma Rut Grímsdóttir

Þyngdarstjórnunarlyf hafa á undanförnum árum hjálpað mörgum við að ná tökum á þyngd sinni og byggja upp heilbrigðari venjur. Lyfin hafa áhrif á hungurtilfinningu, hægja á magatæmingu og hjálpa til við að finna fyrr og lengur fyrir seddu sem gerir það að verkum að flestir borða minna en áður. Þegar borðað er minna er enn mikilvægara að huga að því að það sem borðað er sé næringarríkt. 

Reglulegar máltíðir

Það skiptir miklu máli að huga að mataræðinu samhliða lyfjunum. Að borða reglulega yfir daginn er mikilvægt, t.d. þrjár aðalmáltíðir eins og morgunmat, hádegismat og kvöldmat og 1-3 millimál eftir þörfum yfir daginn. Best er að halda rútínu og stefna á reglulegar máltíðir alla daga, bæði virka daga og um helgar. 

Gæði umfram magn

Þegar magnið sem maður getur borðað minnkar verða gæði fæðunnar enn mikilvægari.

Reyndu að velja fjölbreytt og næringarrík matvæli, helst sem minnst unnin, og fáðu sem mest af næringunni úr:

  • Grænmeti
  • Ávöxtum og berjum
  • Heilkornum
  • Baunum og linsum
  • Fræjum og hnetum
  • Fiski
  • Eggjum
  • Kjöti
  • Hreinum mjólkurvörum
  • Tófú og öðrum próteingjöfum úr jurtaríkinu

Markmiðið er ekki að borða sem mest – heldur að nýta þær máltíðir sem þú borðar vel.

Prótein – sérstaklega mikilvægt við þyngdartap

Við þyngdartap getur hluti af þyngdartapinu komið frá vöðvamassa. Vöðvarnir eru hins vegar afar mikilvægir fyrir styrk, hreyfigetu og efri árin og því er mikilvægt að reyna að halda í þá eins vel og við getum.

Prótein í hverri máltíð getur hjálpað til við að viðhalda vöðvamassa.

Góðir próteingjafar eru til dæmis egg, fiskur, kjöt, baunir, linsur, tófú, og hreinar mjólkurvörur.

Einnig er mikilvægt að stunda styrktarþjálfun samhliða þyngdartapi. Hún getur hjálpað til við að viðhalda vöðvamassa og styrk og er mikilvæg á öllum aldursskeiðum.

Ekki gleyma D-vítamíninu 

D-vítamín er mikilvægt fyrir meðal annars bein og vöðva. Á Íslandi er ráðlagt að taka D-vítamín daglega og því er mikilvægt að halda áfram að huga að því samhliða lyfjameðferð. 

Þegar matarlystin er lítil

Minnkuð matarlyst er algeng, sérstaklega í upphafi meðferðar eða eftir breytingar á lyfjaskammti.

Þá getur hjálpað að:

  • Borða lítið í einu og oftar yfir daginn
  • Velja næringarríkan mat í litlu magni,
  • Forðast að sleppa alveg úr máltíðum.

Hugsaðu frekar „lítið og næringarríkt“ en „ekkert“.

Mögulegar aukaverkanir og ráð við þeim

Hægðatregða

Þar sem lyfin geta hægt á magatæmingu og hreyfingum meltingarvegarins geta sumir fundið fyrir aukinni hægðatregðu.

Þá er gott að leggja áherslu á trefjar úr:

  • Grænmeti
  • Ávöxtum og berjum
    • Sérstaklega kíví
  • Heilkornum
  • Baunum og linsum
  • Fræjum

Gott er að auka trefjaneysluna smám saman og gæta þess að drekka nægan vökva. Einnig getur verið hjálplegt að nota HUSK trefjar. 

Regluleg hreyfing, jafnvel einfaldur daglegur göngutúr, getur hjálpað til við að örva hreyfingu meltingarvegarins.

Niðurgangur

Sumir geta fengið niðurgang og þá getur verið gott að huga að eftirfarandi þar til einkennin líða hjá:

  • Drekka reglulega yfir daginn
  • Velja léttari máltíðir,
  • Takmarka mjög fituríkan mat,
  • Takmarka sterkan mat,
  • Sleppa sætum drykkjum, bæði sykruðum og með sætuefnum

Við mikinn eða langvarandi niðurgang getur einnig þurft að huga að söltum og steinefnum.

Ógleði, bakflæði og uppköst

Ef þú finnur fyrir ógleði, bakflæði eða uppköstum getur hjálpað að:

  • Borða minni máltíðir og oftar yfir daginn
  • Drekka vatn oftar en í litlu magni í einu
  • Borða rólega
  • Forðast tímabundið mat sem getur aukið einkennin, eins og t.d. mjög feitur matur, sterkur eða súr matur ásamt súkkulaði og kaffi

Þreyta, höfuðverkur og vanlíðan

Þreyta, höfuðverkur og almenn vanlíðan geta stundum tengst því að maður sé að borða eða drekka of lítið. Að borða of lítið eða sleppa máltíðum getur aukið þreytu, vanlíðan og lystarleysi.

Ef matarlystin er mjög lítil getur verið gagnlegt að:

  • Bæta við einu millimáli
  • Stækka máltíðirnar lítillega
  • Auka vökvainntöku

Ef erfitt er að fá næga næringu úr venjulegum mat getur verið gott að ræða við næringarfræðing um hvernig best sé að tryggja næga næringu.

Hvenær ætti að leita aðstoðar?

Flest meltingareinkenni eru væg og geta gengið yfir, sérstaklega þegar líkaminn er að venjast lyfinu.

Leitaðu þó til heilsugæslu ef þú færð mikla eða slæma kviðverki, ef andlegri líðan versnar eða ef aukaverkanir eru viðvarandi þrátt fyrir að þú sért að ná inn nægum mat og vökva.

Einnig er mikilvægt að leita ráðgjafar ef matarlystin er svo lítil að þú átt erfitt með að tryggja næga næringu.

Lyfin eru verkfæri – næringin er áfram mikilvæg

Þyngdarstjórnunarlyf geta verið öflugt verkfæri og hjálpað mörgum að ná betri stjórn á matarlyst og þyngd. En þegar matarlystin minnkar verður enn mikilvægara að huga að gæðum fæðunnar, próteinneyslu, trefjum, vökva, hreyfingu og reglulegum máltíðum.

Markmiðið er ekki aðeins að léttast heldur að viðhalda góðri næringu, styrk, vöðvamassa og vellíðan á meðan á meðferð stendur.

Ef þú ert á þyngdarstjórnunarlyfi og ert óviss um hvað eða hversu mikið þú ættir að borða getur einstaklingsmiðuð næringarráðgjöf verið góð leið til að tryggja að þú fáir næga næringu og að mataræðið styðji við markmið þín.

Tengdar greinar