Lífsgæði eru líka meðferð – umræða um hjúkrunarheimili - Aldur er bara tala

Lífsgæði eru líka meðferð – umræða um hjúkrunarheimili

eftir Sólrún Erla Gunnarsdóttir

Í Kveik á RÚV kom fram að á síðasta ári fengu 78% íbúa íslenskra hjúkrunarheimila geðlyf. 65% fengu þunglyndislyf, 22% róandi og kvíðastillandi lyf og 37% geðrofslyf.

Þessar tölur hljóta að kalla á umræðu. Geðlyf eiga oft fullan rétt á sér og geta verið bæði nauðsynleg og mikilvæg meðferð. En tölurnar gefa okkur líka tilefni til að spyrja:

Hvernig getum við í enn ríkari mæli nýtt aðrar leiðir samhliða lyfjameðferð og dregið úr lyfjanotkun þar sem það er mögulegt?

Hvað ef við horfum líka á það sem liggur að baki?

Þegar einstaklingur með heilabilun verður órólegur, kvíðinn, dapur eða sýnir breytta hegðun er auðvelt að beina athyglinni fyrst að hegðuninni sjálfri. En hegðun getur verið tjáning á líðan eða óuppfylltri þörf.

Er einstaklingurinn einmana? Leiðist honum? Er hann með verki? Vantar hann hreyfingu, útiveru eða félagsskap? Finnur hann fyrir óöryggi? Hefur hann eitthvað að hlakka til þegar hann vaknar á morgnana? Þarna geta aðstandendur líka verið mikilvægir samstarfsaðilar. Þeir þekkja oft lífssögu, venjur, áhugamál og persónuleika einstaklingsins betur en nokkur annar.

Samvera og virkni eru hluti af umönnun

Félagsleg virkni á hjúkrunarheimili ætti ekki að vera aukaatriði sem sinnt er þegar tími gefst. Hún er hluti af góðri, einstaklingsmiðaðri umönnun.

Virkni þarf heldur ekki alltaf að þýða bingó eða skipulagða hópastarfsemi. Fyrir einn getur það verið gönguferð. Fyrir annan að brjóta saman þvott, hlusta á tónlist, baka, vökva blóm eða sitja með kaffibolla og spjalla. Það sem skiptir máli er að þekkja einstaklinginn, lífssögu hans, venjur og áhugamál og byggja á því.

Þessar hugmyndir eru ekki nýjar. Einstaklingsmiðuð umönnun og félagslegar og umhverfistengdar leiðir hafa lengi verið hluti af umræðunni um góða þjónustu við fólk á hjúkrunarheimilum, með heilabilun eða ekki. Áskorunin er kannski frekar að skapa aðstæður til að þær verði raunverulegur hluti af daglegu starfi.

Frelsi og öryggi

Í Kveik var einnig fjallað um hollenskt samfélag fyrir fólk með langt gengna heilabilun þar sem umhverfið er hannað þannig að íbúar geti lifað eins eðlilegu lífi og mögulegt er og notið meira frelsis. Það vekur upp áhugaverða spurningu fyrir okkur hér á Íslandi:

Getum við veitt fólki meira frelsi án þess að fórna örygginu?

Með þeirri velferðartækni sem nú er í boði er ástæða til að skoða enn betur hvernig hægt er að gera fólki með á hjúkrunarheimilum kleift að hreyfa sig frjálsar, komast út undir bert loft og halda lengur í sjálfstæði sitt. Getum við breytt umhverfinu þannig að öruggara sé fyrir fólk að fara frjálst um? Getum við nýtt tæknina betur til að styðja við sjálfstæði í stað þess að takmarka það?

Starfsfólkið þarf verkfærin og tíma til að nota þau

Starfsfólk hjúkrunarheimila sinnir krefjandi störfum og víða undir miklu álagi. Það er því ekki nóg að segja að þjónustan eigi að vera einstaklingsmiðaðri. Ef við viljum efla þessar áherslur þarf starfsfólk tíma, þekkingu, næga mönnun og þjálfun til þess. Fræðsla m.a um heilabilun getur hjálpað starfsfólki að lesa í hegðun, leita mögulegra orsaka vanlíðanar, þekkja lífssögu einstaklingsins og nýta félagslegar, umhverfistengdar og einstaklingsmiðaðar leiðir.

Slíkar áherslur eru ekki nýjar. Spurningin er því kannski ekki hvort við vitum hvað við getum gert heldur hvernig við tryggjum að þekkingin komist í framkvæmd.

Frá þekkingu yfir í framkvæmd

Við eigum auðvitað áfram að nota lyf þegar þau eru nauðsynleg og gagnast einstaklingnum. En tölurnar sem birtust í Kveik ættu að hvetja okkur til að horfa líka á stóru myndina.

Hvernig viljum við sjálf lifa ef við þurfum einhvern tímann að flytja á hjúkrunarheimili?Við myndum líklega vilja öryggi og góða heilbrigðisþjónustu. En við myndum líka vilja komast út, hitta fólk, hreyfa okkur, gera eitthvað sem skiptir okkur máli og hafa áfram eitthvað um eigið líf að segja. Kannski þurfum við því ekki endilega að finna upp nýjar leiðir. Margar þeirra þekkjum við nú þegar. Verkefnið er að skapa aðstæður þar sem hægt er að nota aðrar leiðir á hverjum degi.

Þar þurfa stjórnvöld, stjórnendur hjúkrunarheimila, starfsfólk, aðstandendur og samfélagið allt að vinna saman.

Tengdar greinar