Meðalævilengd karla á Íslandi var 81,0 ár árið 2025 og meðalævilengd kvenna 84,2 ár en meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans
Frá árinu 1990 hafa karlar bætt við sig rúmlega fimm árum og konur tæplega fjórum í meðalævilengd. Ævilengd karla jókst um 0,1 ár frá árinu 2024 á meðan hún minnkaði hjá konum um 0,1 á milli áranna 2024 og 2025.