Í dag voru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags-og húsnæðismálaráðuneytisins. Ragnar Þór Ingólfsson ráðherra veitti samtals 20 styrki til reksturs og fjölbreyttra verkefna.
Landssamband eldri borgara (LEB) fékk rekstrarstyrk upp á 15.000.000 kr, styrk í verkefnið Bjartur lîfstíll 12.000.000 kr og styrk í stafræna vegferð eldri borgara upp á 4.500.000 kr.
Meðal annarra sem fengu styrk var Rauði Krossinn í Vinaverkefni – félagsleg þátttaka og Kvenfélagasamband Íslands í Viku einmanaleikans.
Sjá nánar á https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/03/17/Styrkir-veittir-til-frjalsra-felagasamtaka-til-verkefna-a-svidi-felagsmala/