Virk efri ár á Akureyri

eftir Ritstjórn

Um 220 manns sóttu kynningu á verkefninu „Virk efri ár“ sem haldin var í Hofi á Akureyri um síðustu helgi.

Verkefninu er ætlað að styðja við heilsueflingu eldri íbúa sveitarfélagsins en rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing skiptir afar miklu máli þegar kemur að því að bæta eigin heilsu og auka lífsgæði.

Í fyrstu lotu sem stendur í 12 vikur verður t.d. í boði blak, styrktaræfingar, borðtennis, göngufótbolti, jóga, leikir, badminton, göngukörfubolti, innanhúss frisbígolf (folf), pílukast, gönguferðir, sundleikfimi og fræðsla. Umsjónaraðilr eru opnir fyrir öllum uppástungum og ábendingum um fleiri kosti.

Þátttakendur eru hvattir til að prófa sem flest og stefna að því að finna að lágmarki þrennt sem höfðar til þeirra. Æfingar hefjast 13. febrúar og er að finna nánari upplýsingar á www.akureyri.is

Tengdar greinar