Hvað var í matinn á íslenskum heimilum á árunum í kringum 1970 ? - Aldur er bara tala

Hvað var í matinn á íslenskum heimilum á árunum í kringum 1970 ?

eftir Ritstjórn

Hvað var í matinn heima hjá þér þegar þú varst barn?

Ef við færum okkur aftur til ársins 1970 væri svarið líklega talsvert öðruvísi en í dag. Engar pizzur pantaðar með appi, lítið um sushi og avókadóið var ekki beinlínis fastagestur á íslenska matarborðinu. Kjúklingabringur varla þekktust.

Einfalt og saðsamt

Á mörgum heimilum var maturinn einfaldur og saðsamur. Fiskur var mjög algengur, soðin ýsa með kartöflum og smjöri. Saltfiskur, fiskibollur og plokkfiskur voru líka kunnuglegir réttir og afgangar voru gjarnan nýttir í næstu máltíð.

Kjötið átti auðvitað sinn fasta sess. Lambakjöt, hrossakjöt, kjöt í karrý, hakk og buff, bjúgu, kjötfars og saltkjöt voru meðal þess sem gat ratað á borðið. Meðlætið var gjarnan soðnar kartöflur og soðsósa eða hvít sósa. Lambalæri eða hryggur á sunnudögum með rauðkáli og grænum baunum var á mörgum heimilum hefð.

ORA var feykivinsælt

Fiskibollur og steiktur fiskbúðingur úr dós frá ORA voru fljótlegur hversdagsmatur á mörgum heimilum. Fiskibollurnar með karrísósu eða bleikri sósu vekja eflaust upp minningar hjá mörgum

Grænmetisúrvalið takmarkað

Grænmetisúrvalið var heldur ekki alveg það sama og við eigum að venjast í dag. Kartöflur, gulrætur, rófur og hvítkál komu oft við sögu, en litríkt ferskt salat með hverri máltíð var ekki algengt.

Eftirréttir

Á mörgum heimilum þótti máltíðin ekki fullkomin nema eitthvað kæmi á eftir. Hrísgrjónagrautur, makkarónusúpa, kakósúpa eða ávaxtagrautur fylgdu oft aðalréttinum.

Morgunmatur og kvöldmatur voru líka einfaldari en víða í dag. Hafragrautur, brauð, slátur, súrmjólk, skyr og mjólk voru jafnan á borðum landsmanna.

Höldum enn í gamlar hefðir

Þótt mataræðið hafi breyst mikið á rúmri hálfri öld er merkilegt hvað margt af þessum gamla heimilismat lifir enn góðu lífi. Margir af þessum klassísku réttum eins og soðin ýsa með kartöflum, kjöt í karrý og hrísgrjónagrautur eru enn reglulega á borðum landsmanna.

Hvað var algengt að væri á borðum á þínu æskuheimili ?

Tengdar greinar